24.11.2008 | 08:24
Tvennir grautar í sömu skál...
Merkilegt hvað það er mikill munur á því hvernig fréttir eru sagðar. mbl.is segir: "Minnkandi áhugi á ESB-aðild" á meðan visir.is segir: "Meirihluti vill ESB-umsókn og evru". Eru þessir miðlar ekki báðir að segja frá sama hlutnum? Skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Báðir segja í meginatriðum satt og rétt frá, en báðir eru inni á línunni "Hafa skal það sem betur hljómar". Eru þessir tvennir grautar ekki komnir í sömu skálina?
Minnkandi áhugi á ESB-aðild | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sama má segja um fullyrðinguna að tæp 40% sjálfstæðismanna séu fylgandi ESB aðildarviðræðum.
Auðvitað er réttara að segja af þeim sem enn kjósa Sjálfstæðisflokkinn, því nú kjósa einhver 25% af þeim sem svara flokkinn. 30-40% eru óákveðnir og mikið af þeim munu kjósa flokk, sem vill ESB aðildarviðræður.
Þetta er flókin staða að spá í!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 24.11.2008 kl. 09:17
Hver á hvaða fjölmiðil og hvað hefur eigandinn hag að?
Fannar frá Rifi, 24.11.2008 kl. 11:39
Ég mæli með myndinni Hard rock and water en þar er Ísland borið saman við Nýfundnaland sem missti sjálfstæði eftir kreppu en þar 30%,atvinnuleysi í landi sem er mjög ríkt af auðlindum.
Víti til varnaðar
Hérna er fróðlegt video viðtal við Höfundinn að myndinni
Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 24.11.2008 kl. 14:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.