Átta stiga sarpur...

Þetta var ekki sannfærandi spilamennska hjá mínum mönnum í dag, en þetta hafðist. Ég verð að viðurkenna að Blackburn var að sýna fína takta inn á milli, en það var bara vegna þess að mínir menn leyfðu þeim það. En þarna voru ýmis atriði sem ýmsir Púllarar sem ég þekki hafa verið að grenja hástöfum yfir, sbr. þegar Normannafíflið datt mikið auðveldara en Ronaldo þegar hann er í mesta drama-gírnum og gott ef Gamst-inn var ekki bara í klassa við Gerard þegar hann er í sínu öflugasta dýfingastuði. Fyrst að dómarinn sá ekkert athugavert við þetta (frekar en ég), þá átti Nojaratrefillinn að fá gula spjaldið fyrir lélegann leikaraskap.

Markið sem var dæmt af utd var fullkomlega löglegt miðað við það sem dómarinn var búinn að leyfa í leiknum.

Hitt má Roque Santa-Cruz eiga að markið hans var yfirvegað og flott... en hann hefði aldrei sett hann á móti v.der Saar, því hann hefði beðið á línunni og lokað vinklinum .

En 8 stiga forði á púllarana... og á morgun frýs í helvíti, því ÉG MUN HALDA MEÐ CITY!!!!!


mbl.is Manchester með átta stiga forystu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ert þú 12 ára eða,fyrir það fyrsta þá var þetta  ekki hornspyrna áður en markið  var dæmt af og horfðu svo á 442 á  sport2 og hlustaðu á hvað þeir hafa um Gamst að segja um vítið sem átti að dæma og einn þeirra segir að víti séu ekki auðsótt á old trafford.

ps. ekki bera Gerrard saman við ronaldo í dýfum , Gerrard er miklu heilsteyptari leikmaður

johnny (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 21:57

2 Smámynd: Magnús Þór Friðriksson

Alltaf jafn þykkur skrápurinn...

Magnús Þór Friðriksson, 22.2.2009 kl. 00:29

3 identicon

Heilsteyptari maður? haha

Maðurinn sem gefur yfirlýsingar við alla miðla að hann sé þvílíkt á móti dýfingum í þessu sporti en er samt að nálgast eða er búinn að toppa Ronaldo í þeim efnum. Skulum alveg passa okkur á Steve-Me dýrkunum hérna, ætli hann biðji ekki um flutning yfir til Chelsea eftir þessa leiktíð, í þriðja skiptið á ferlinum ;)

Hvort þetta var hornspyrna eða ekki þá er ég sammála að þetta átti ekki að vera hornspyrna en þetta átti að vera aukaspyrna! Kemur út á það sama, markið var dæmt af og ranglega það! Og enginn heilvita maður sem skoðar vítaspyrnukröfuna frá Gamst af hlutleysi getur verið að telja að Rafael hafi togað hann niður. Gamst datt um leið og hann fékk smá snertingu, algjör dýfa en líklega sérð þú það ekki....

ellioman (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 00:32

4 Smámynd: Ragnar Martens

Johnny, Gerrard lætur sig falla með tilþrifum í hvert skipti sem hann fær til þess tækifæri. Ekki er hægt að tala um heilsteiptari í þessum efnum.

http://www.youtube.com/watch?v=1GKXAKQY-0Y&feature=related

á linknum hér að ofan sérð þú video af gerrard máli mínu til sönnunar.

Ragnar Martens, 22.2.2009 kl. 09:32

5 Smámynd: Ólafur Gíslason

Flott Video.  Gerard ætti frekar að keppa í sundi og hætta að tjá sig um dýfingar annarra.  Ég gef honum 7,3.

Ólafur Gíslason, 22.2.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband