18.5.2009 | 22:15
Bitu þeir "blaðursuggan" af ræðunni?
Tók yfirvegaða ákvörðun um að þvo þvott og brjóta saman frekar en að hlusta á skvaldrið við Austurvöll í kvöld... það er þó allaveganna aðgerð sem er til gagns fyrir þetta heimili...
Átta jómfrúrræður í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað klikkaði í þínu uppeldi Maggi? Maður tekur ekki yfirvegaða ákvörðun um að fara í húsverkin frekar en að liggja í sófanum og dotta, nema þá eftir mjög ljótar augngotur og þá er ákvörðunin auðvitað tekin mjög yfirvegað - sé það núna. Enn trúi því og treysti að þú hafir nú reynt af fremsta megni að koma þér undan þessu.
Gleymdist í uppeldinu að kenna þér hvernig á að stilla þvottavél til að vera ekki látinn þvo aftur?
Högni Jóhann Sigurjónsson, 18.5.2009 kl. 22:36
Er grasekkill þessa dagana, þannig að ég náði bara að velta samanbrotinu á heimasætuna... sá um vélvæðinguna sjálfur
Magnús Þór Friðriksson, 18.5.2009 kl. 23:11
Þetta er afsökun útaf fyrir sig, en vont afspurnar.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 19.5.2009 kl. 00:38
EN... þetta voru aðgerðir sem gagnast okkar heimili!! Það er meira en "Óvildarmenn Óskars" geta státað af...
Magnús Þór Friðriksson, 19.5.2009 kl. 00:51
Það er mikið rétt.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 19.5.2009 kl. 11:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.