8.7.2009 | 00:37
Eru þeir með öllu veruleikafirrtir?
Manni var nánast hlátur í huga... þegar maður heyrði af þessu "tilboði" feðganna! En svo rann upp fyrir mér að ég var að heyra þetta í fréttatíma RÚV... ekki neinni "sel það ekki dýrara en ég keypti það" sögu á einhverri kaffistofu úti í bæ!
Hefur jarðvírinn í þeim feðgum slitnað algjörlega?? Þeir verða tjargaðir og fiðraðir hvar sem til þeirra næst af sómakærum íslendingum!
Ef þetta "tilboð" þeirra verður samþykkt, þá verður fjandinn laus í þessu þjóðfélagi!... og þá má vitna í Hr. Haarde... "Guð blessi Ísland"
Varar við borgarastyrjöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ef einhver hefði sagt að Ísland yrði svona fyrir 30 árum, hefðu ekki margir talið þann með fullu sens.
Júlíus Björnsson, 8.7.2009 kl. 03:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.