Júróvisjón, Auðkennislyklar og annað ámóta drasl...

Þá er það á hreinu..... Júróvisjón er jafn ónýtt og Auðkennislyklarnir eins og BaggalútsEnter bendir svo réttilega á hér.

Þessi blessaða keppni lyktar eins og ryðgað Járntjald sem flækingshundar míga utan í og minnir meira orðið á þjóðlagahátíð í Kákasus en hefðbundið Norðurlandadómíneraðað glimmersjóv í Skagfirskum stíl. Þetta sökkar jafn mikið og aukennislyklaruslið sem er búið að pranga inn á mann og maður þarf að fara betur með en sjáaldur auga síns ef maður vill ekki fylla póstkassan af gulum miðum og gluggaumslögum frá teinóttu tittunum á Laugaveginum, Borgartúninu og hvar annarstaðar sem þessar bévítans vaxtaokrandi afætur halda nú til.

Nei, nú er gamli grumparinn farinn að ná yfirhöndinni hjá mér.... ætla að fá mér vatnsglas og sjá hvort það sé hægt að lífga þessa heljarbornu lyklakippudruslu við með einhverskonar skyndihjálp.

Farið vel með ykkur........... og í öllum guðs bænum; Auðkennislyklana ykkar!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband