14.3.2007 | 23:22
Hversu stór þurfa glösin að vera??
Svona vill fólk þá hafa það!! Borga stórfé í félagsgjöld í kerlingaklúbbnum (ESB) og horfa upp á aurana renna í svona fávitaskap eins og að spyrja fólk hvort það detti í það eða ekki. Svo hefur það eflaust kostað skildinginn að finna þessa fimm-glasa skilgreiningu á hugtakinu fyllerí! Einhverjir blýantsnagarar (takk fyrir hugtakið Jón Baldvin) í Brüssel hafa eytt mánuðum saman í drykkju á áfengi úr misstórum glösum til að komast að þessu.
Hversu stór þurfa glösin að vera til að maður teljist fara á fyllerí????
Hvar ætli við íslendingar myndum lenda á svona lista?? Eflaust mjög neðarlega, því við drekkum svo helvíti mikið á stút!
Ekki er nú öll vitleysan eins.
Þriðji hver Íri fer á fyllirí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.