Hvíumlíkur og annar eins dónaskapur!

Ég sit hérna við tölvuna mína og næ varla upp í nefið á mér! Ég sat í makindum mínum og naut þess að horfa á mína (vara)menn halda hreinu á móti Tsjelsý fyrr í kvöld þegar einhver frá hverfisskrifstofu ******** .... stjórnmálaflokks á atkvæðaveiðum hringir í mig.... í miðjum leik! Hefur þetta lið þurran þvottasvamp í heilastað?? Hvaða heilvita manni dettur í hug að hringja í mann á ofanverðum fertugsaldri þegar það er bolti í imbanum og betla atkvæði?? Mér var um tíma skapi næst að hætta að kjósa þennan flokk (sem ég hef haldið tryggð við í rúm 20 ár) bara útaf þessum dónaskap!Devil

Væri ekki úr vegi að Stjórnmálaflokkar færu í smá greiningavinnu á markhópum áður en þeir hringja í fólk og ónáða það í miðjum kappleik! Annað eins er nú "ofur-analæsað" hér á landi!! Karlar á mínum aldri eru boltafíklar upp til hópa og þeir sem þykjast ekki vera það eru bara í afneitun Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband