Ég er bjartsýnn..... í alvöru!

Þrátt fyrir að ég nái að sjá dauða og djöful úti í hverju horni, þá langar mig að taka það fram að ég hef fulla trú á okkur íslendingum sem þjóð og ég er sannfærður um að við verðum fljót að ná okkur út úr þessu ástandi.... líklega á undan mörgum öðrum þjóðum.

Hversvegna??

  1. Við framleiðum matvæli. Það er eitthvað sem fólk mun ekki hætta að nota og við þurfum að hlúa að því. "SLORIÐ ER KÚL!"
  2. Við framleiðum Ál. Með aukinni meðvitund fólks um umhverfisvernd og orkusparnað, þá munu þeir bílaframleiðendur sem hafa rænu til leitast við að framleiða léttari og sparneytnari bíla. Þar er Álið málið.
  3. ORKA! Við eigum að nýta okkur þá orku sem landið býður. Hversu flott væri það ef við næðum að t.d. vetnisvæða fiskiskipaflotann? Væri það ekki frábært í markaðsvinnu á fiskafurðum að geta selt fiskinn sem vistvænann kost, tala nú ekki um smábátafiskinn. Þetta er hægt. Auka rannsóknir og þróun á Vetni sem raunhæfum orkugjafa.
  4. Mannauðurinn. Við erum hugmyndaríkt og gáfað fólk. Auk þess er menntunarstigið okkar hátt (má reindar bæta hana verulega þegar kemur að hagfræði).
  5. og að lokum: Þetta reddast!!!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband